27. maí, 2025

Kalli vopnaður rándýrum áfengismæli – Nemendur ósáttir

Ritstjórn

Ritstjórn

Á morgun er hið árlega Dimissio hjá útskriftarnemum skólans. Þá munu nemendur kveðja kennara og busa en seinna um daginn er svo ratleikur þar sem nemendurnir klæða sig upp í einnkennisbúning bekkjarins það árið. Svo dæmi séu tekin þá eru 3. Aliens og 3. X-Ray. Strunsa nemendur svo út um allan bæ og takast á við áskoranir ratleiksins.

Ritstjórn Hrímfaxa hefur undir höndum áræðanlegar upplýsingar um að Skólameistari MA, Karl Frímannsson, hafi fjárfest í áfengismælum fyrir himinháar upphæðir. Í hvaða tilgangi spyrja eflaust margir sig? Jú til að koma upp um þá sem fá sér í glas á Dimissio.

Auðvelt er að spyrja sig hvort að ekki hefði verið betra að verja peningnum í aðra kostnaðarliði skólans?

Ritstjórn Hrímfaxa skorar á skólameistara að skila áfengismælinum og að leyfa nemendum að njóta vafans.

 

Fleira skemmtilegt...